Linda Sylvía
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
23.08.2006 14:27:52 / linda

y89o

http://www.pink-puma.bloggar.is

tjékkit, nýtt bloggsvæði....er komin þangað...


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.08.2006 22:40:42 / linda

must read

tekur smá tíma að lesa, en er snilld engu að síður...

Opið bréf til Gunnars í Krossinum, Jón Vals Jenssonar, Snorra í Betel sem og
annarra bókstafstrúarmanna sem hafa “Sannleikann” sín megin og birtu m.a.
auglýsingu í Morgunblaðinu sl.Sunnudag varðandi “lækningu” við samkynhneigð:

Kæru bókstafstrúarmenn,
Kærar þakkir fyrir upplýsa fáfróðan almenning á Íslandi varðandi “Guðs lög” sem
og um “sannleikann”. Það er ljóst að það er mjög margt sem maður getur lært
frá ykkur – vitrari mönnum – og við reynum t.d. að miðla ykkar fróðleik eins
víða og við getum þar sem við teljum ykkur vera eins og þið segið – boðberar
sannleikans í einu og öllu.
Það eru hinsvegar nokkur atriði sem við þurfum aðstoð við varðandi “Guðs orð”
því eins og þið bentið alltaf á, er sannleikann að finna í guðs orði og orð
Guðs er óbreytanlegt og eilíft.
Eftir að hafa lesið Guðs orð undanfarið vakna nokkrar spurningar varðandi
óbreytanleika guðs orðs sem og þeirrar fullyrðingar að guðs orð sé eilíft og
hinn eini sannleikur:

1. Mig langar að selja dóttur mína í þrældóm eins og leyft er í guðs orði,
Exodus 21:7 – hvað teljið þið eðlilegt markaðsverð fyrir hana þar sem þið eruð
jú sérfræðingarnir hérna, er 18 ára og gullfalleg.
2. Ég veit að ég má ekki hafa neitt samband af neinu tagi við konu á meðan hún
er ´”túr” sbr. guðs orð Lev 15:19-24....hvernig fer ég að því að hafa ekkert
samband að neinu tagi við konu mína svo dögum skiptir ? Ber mér að flytja út úr
húsinu okkar ?
3. Í guðs orði, Lev 25:44 segir skýrt að ég megi hafa þræla – bæði karlmenn
sem og konur, svo framarlega sem þeir eru keyptir frá nágrannalöndum okkar.
Vandamálið er að ég er mjög hrifinn af Þjóðverjum og því langar mig að spyrja
af hverju ég megi ekki eiga þræla frá Þýskalandi þótt það sé ekki nágrannaland
okkar ?
4. Ég á vin sem krefst þess að vinna á “Sabbath” deginum. Í Guðs orði, Exodus
35:2 segir skýrt að hann skuli tekinn af lífi fyrir slíkan óhæfuverknað. Er ég
skyldugur til að drepa hann sjálfur eða get ég látið öðrum það eftir ?
5. Í guðs orði, Lev 21:20 segir skýrt að ég megi ekki nálgast altari guðs ef ég
hafi sjónskekkju , þ.e. ekki fullkomna sýn. Ég verð að viðurkenna að ég nota
lesgleraugu – er ekki eitthvad svigrúm hérna svo ég geti nálgast altari guðs ?
6. Flestir karlkyns vinir mínir fara í klippingu og snyrta nefhár osvfrv.,þrátt
fyrir að þetta sé stranglega bannað skv.guðs orði, Lev 19:27. Á hvaða hátt
ber að taka þessa menn af lífi ? Kitlar mig soldið að keyra yfir þá á nýja
jeppanum mínum ?
7. Frændi minn er bóndi. Því miður brýtur hann guðs orð, Lev 19:19 þar sem hann
er með 2 uppskerur á sömu jörð. Kona hans brýtur einnig sama ákvæði Guðs orðs
með því að nota 2 mismunandi efni í fötin sín (Cotton/Polyester). Hann blótar
einnig og rífur kjaft. Er það virkilega nauðsynlegt að safna öllum bæjarbúum
til að grýta þau til dauða eins og segir í guðs orði (Lev 24:10-16) ? Er ekki
bara hægt að brenna þau til dauða innan fjölskyldunnar, eins og við gerum með
fólk sem sefur hjá ættingjum sínum ?

Ég veit að þið hafið skoðað og lært þessar kenningar í einu og öllu svo ég er
sannfærður að þið getið hjálpað. Og síðast en ekki síst – bestu þakkir fyrir
að benda okkur á að Guðs orðs er ÓBREYTANLEGT og EILÍFT.
Bestu kveður,
Hinir fáfróðu

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 21:25:45 / linda

*~*~*~Gullkorn*~*~*~

var að safna saman nokkrum gullkornum í gegnum tíðina og hef ákveðið að setja þau hér inn... Seinna, þegar nógu mikið hefur safnast, þá verður þetta hér á síðunni, en til að byrja með verður þetta í þessari færslu og endilega ef ykkur detta gullkorn í hug, sem mar kannast við, þá setja það í kommentin..Vona að ég sé ekki að móðga neinn, enda er þetta allt í góðu gríni gert.....

vessegú.....

Linda og Bjöggi að tala saman í fúlustu alvöru:

Linda: heyrðu Bjöggi, hvað verður um heimalingana?

Bjöggi: Hvað meinaru?

Linda: Æ, þúst, hvað verður um þá þegar þeir verða stórir?

Bjöggi: Ég veit það bara ekki....verða þeir ekki bara rollur......? 8|

~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~

Linda og Gulla að tala saman.

Linda:.................já og svo veit ég um stelpu sem var með eitt blátt auga og svo eitt brúnt...

Gulla: já er það....og hvernig ætli það sé........?

Linda: hvað meinaru?

Gulla: Þúst, ætli hún sjái eins með báðum....?8|8|

~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~

Linda að fara með bílinn á dekkjaverkstæði, þurfti að láta skipta um framdekkin, búið var að skipta um afturdekkin og tvö dekk í skottinu.

Linda: Heyrðu, ég þarf að láta skipta um dekk hjá mér.

Halli dekkjakall: já,ok, hvaða dekk?

Linda: hjumm, sko bara framdekkin.......(opna svo skottið og ætla að ná í dekkin)

Linda: heyrðu mig nú, hér eru bara tvö dekk.........

Halli dekkjakall: já, er þá ekki bara búið að skipta um tvö dekk?

Linda: júú, Bjöggi lét sko skipta um afturdekkin um daginn....

Halli dekkjakall: ........og hvert er þá vandamálið??
Linda: sko, það eru bara tvö dekk hér, vantar tvö.....?

Halli dekkjakall: Haa?

Linda: já, hér eru tvö, en það eru nottla fjögur dekk undir bílnum.....

Halli dekkjakall: Þetter alltílæ, ég þarf bara tvö, því framdekkin eru bara tvö.........

~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~

man ekki fleiri í augnablikinu, en ennnnndilega minnið mig á fleiri og kommentið


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 22:01:17 / linda

njrkes

eina rauða rós færð frá mééééér, ennþá fleiri rósir eru héééér

 

já ég veit, ég veit....er lööööööt við að blogga....

vil líka nota tækifærið og biðja þá sem ég stuðaði með síðustu færslu, afsökunar...réði ekkert við þetta....það er lygi, réði við þetta, en vildi vera pirruð....

Ferlega fyndið, var að horfa á fréttir um daginn (ehh,já ég horfi á fréttir) og þar var Sigmundur Ernir að lesa fréttir...hann hefði alveg eins getað ´æpt "na-na-na-na bú-bú! ég er nýkominn heim frá úglöndum!" Ekkert smá sólbrúnn og smúk! Og ekki var Siggi stormur betri..."já hér virðist vera skýjabakki framundan og hann liggur þétt við landið..........BTW, ég var að koma frá útlandinu með S.Erni, vini mínum...." Alveg elgtanaðir báðir tveir...Kannski fóru þeir ekki neitt, gætu bara verið ryðgaðir eftir rigninguna...hohohohohohohohoho

annars er allt gott að frétta héðan, Elísabet Inga er nottla alveg yndisleg, og hún kemur með nýja takta á hverjum degi, nýjasta nýtt er að frussa....ójá, hún frussar líka helt þegar maður er að knúsa hana, maður fær bara sturtuna yfir sig. Svo er hún nýbyrjuð að gera "Svona stór" og gerir það í tíma og ótíma, og helst þegar háttatíminn nálgast, hún veit að hún fær smááá frest ef hún nær okkur á skrið með þessu, "hvað ertu stór?" "SVONA STÓR".......hehehehe algjör engill. Svo er hún húkkt á Glæstum, og segir bara "ava ava" þegar Eric Forrester birtist á skjánum...hehehehe

allavega, það er fullt af fólki sem ég sakna í augnablikinu.....Thelma, ég sakna þín, Arna Vala, ég sakna þín, Gillinn minn, ég sakna þín, Ella, ég sakna þín, kristín,ég sakna þín, Halldóra, ég sakna þín......

Ef þú ert ekki álistanum, þá þýðir það að ég er sennilega nýbúin að hitta þig, eða er búin að mæla mér mót við þig, þannig að ekki móðgast...

Já, sá sem verður nr 10.000 fær verðlaun, BLEIKA CONVERSE skó frá mér!!!! muna að kvitta.....


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 14:08:20 / linda

varúð, ekki skemmtileg færsla.....

úfffff............

er orðin nett pisst og pirruð á þessu........Algjörlega óþolandi að geta ekki farið útí búð og keypt það sem manni vantar....fáránlegt að þurfa að fara í Kef eða RVK til að kaupa "nauðsynlega" hluti einsog t.d. tannstöngla, hárlit, blek í prentarann, geisladiska, samfellur, ljósmyndapappír og byggingavörur....algjörlega út í hróa hött....Þjónustan er heldur ekkert til að hrópa húrra yfir...get ekki fengið dagmömmu, get ekki farið til sýslumanns nema á milli 9-13,og ef að svo vildi til að ég þyrfti lögregluaðstoð, þá er hún í 90% tilfella í keflavík og nennir kannski ekkert að koma nema að einhver hafi hreinlega verið myrtur, aaargh......ég er algjörlega komin með gubbuna á þessu öllu saman...........

Ég ætla að biðja kommentara um að geyma komment með beiðnir handa mér um að flytja í minn heimabæ þangað til að ég er búin að jafna mig á þessu fjandans pirrings kasti.....Þið vitið að ég vill koma, en ég vil samt ekki fara.....huh, flókið?8|

 Sem betur fer á ég yndislegt barn sem er gædd þeim hæfileika að eyða öllum pirring um leið og maður lítur framan í hana, bíð spennt eftir að prinsessan vakni......;)

Linda-í-pirringskasti-sem-sýnir-að-hún-er-mannleg-og-eins-og-allir-hinir kveður......


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.07.2006 23:55:37 / linda

eniga meniga öllum vantar peninga....

Já, vegna fjölda áskorana hef éákveðið að blogga.... Eehh, Begga, takk fyrir áskorunINA......Ég bregst þér ekki esssskan...

First thing first.... Er semsagt komin úr sveitalubbasælunni, þetta var alveg meiriháttar vika.......Byrjaði brösulega....fyrst urðum við vatnslaus, og það mátti varla sturta niður, nema að mar hefði gert nr 2, en því var fljótlega kippt í liðinn, fjúkket, segi ég nú bara.....Svo urðum við gaslaus, en því var reddað næstum strax, og svo hrundi gasgrillið........ Eeeeen fall er fararheill og þetta blessaðist og allir voru voða glaðir og sælir og allir að sveitalubbast og veiða og sona......Og ungfrú Sveitastelpa hún Elísabet Inga var alveg hæstánægð, fékk að hitta kálfa og lömb og kisu og hvaðeina..... Þvílíkur og annar eins dýravinur hefur varla sést áður....Alveg elskar dýr, sama hvort það sé risa kálfur eða pínu kisukríli, hún elskar þau öll.....Við Elísabet gætum aldrei in a million years verið bændur, gætum aldrei sent frá okkur dýr í slátrun, látið hundana sofa bara einhversstaðar eða sent rollur á fjall......Förum ekki útí það nánar.....

Litli prins hjá Gullu og Sigga braggast alveg ótrúlega vel. Þvílík hetja þessi litli kall.... 3vikna kríli sem fékk heilahimnubólgu, þvagfærasýkingu og svo greindist í honum hlaupabóla í þokkabót!!! Við sendum þeim risa knús í hugnaum á hverjum degi og vonum að þau finni fyrir því......

Elísabet Inga braggast líka vel, er alveg að verða 7 mánaða..... Ferlega er tíminn fljótur að líða..... Finnst ekkert svoooo langt síðan hún kom í heiminn, alveg agnarsmá, nú er mín orðin vooooða braggleg, komin með 8 tennur og allt! Er líka alveg ferlega montin með tennurnar sínar, og finnst það skemmtilegasta í heimi þegar ég tannbursta hana! Hún vandar sig voða mikið að hafa munninn opinn, en stundum verður það erfitt því hún hlær svo mikið......Þvílík dúlla að það er engu lagi líkt (hey, ég MÁ monta mig, þetter bloggið mitt, og ef þú höndlar ekki smááá mont, vertu þá annarsstaðar dúddinn þinn!!!!)

vááá hvað þetta er orðið langt hjá mér.....

finnst einsog ég þurfi að segja meira.....

man samt ekki  hvað..........................................

eða jú, alveg rétt......

HUNSKIST SVO TIL AÐ VERA DUGLEG TIL AÐ KOMMENTA APAKETTIRNIR YKKAR!!!!!

sjeumst, pís át og allt......


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 22:14:29 / linda

dísjús kræstttttt......

sko......neinniggi að blogga.....hver nennir að blogga? Það nennir enginn að blogga...... Það nennir enginn að kommenta, eða neitt.....ætla samt ekkert að hætta neitt.....

  • er að fara í sveitina....
  • kíkja á dýrin og sona..
  • borða, lesa, dúllast með sætustu stelpu í heimi....
  • Það er Elísabet Inga sko, fyrir þá sem eru með ótengdann fattara..
  • Sofa......liggja í sólinni (er það? Ég vona það)
  • borða meira.....
  • hangsast með þessu fólki sem verður þaddna líka....
  • koma heim OG BLOGGA!!

jíhaaaaaaaa......

Ég bið ykkur vel að lifa gott fólk, verið í guðanna bænum góð við hvort annað og náungann....

bleh í bjele


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 13:47:55 / linda

húbba húlla húlla húlla

Blogga? Hvernig væri það....

Byrjum á byrjuninni

Elsku Gulla og Siggi, til hammó með prinsinn!

Hann er algjör engill, það er Sandgerðingurinn í honum, það er pottþétt, Enda eru Sandgerðingar með þeim rólegustu sem þekkjast, e´haggi......

Nenni ekki að hafa svona skííítaveður...Rugl og bull  það er kominn júní, og þá á ekki að líðast að hafa svona veður..ojbjakk....Er að fara í bústað bráðum, og þá er eins gott að sólin hunskist til að sýna sitt gula smetti, ekkert eins fúlt og að vera í bústað í rigningu...Fyndið samt, hvað allir geta talað um veðrið..Hafið þið tekið eftir þessu?? Ef mar hringir t.d í einhvern sem eer ekki í sama bæjarfélagi, þá er alltaf spurt "hvernig er svo veðrið?" og svo er svarað "usss, skítaveður, búið að rigna og rigna, svo kom snjór, og svo rigning, og svo kom sól, og svo seinnipartinn á laugardaginn þá kom haglél og svo.........."  Svo hittir mar einhvern í búðinni þá heyrist "ojbjakk, bölvað veðrið"..............Svo bloggar mar, og hvað gerist.......MAÐUR TALAR UM VEÐRIÐ!!!!!!

ætti ég kannski að tala frekar um HM?

guuuð, nei, ekki orðum á það eyðandi, en ég segi nú einsog Thelma, ef við værum að tala um H&M þá erum við að dansa.......

Ætla að fara að athuga með hana dóttir mína, sem sefur eins og engill (nema hvað, hún er nottla Sandgerðingur) úti í RIGNINGUNNI......

bleh í bjele...


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 18:27:39 / linda

tilkynningarskyldan...

jæja, ætla bara rétt að kasta inn kveðju og láta vita að Gulla er komin inná fæðingardeild.. Allt að ske..

set inn fréttir um leið og þær berast..

bleh í bjele

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.06.2006 11:50:36 / linda

húllahopp...

Það er komið sumar í mig.....

Fer helst ekki að sofa fyrr en það er orðið dimmt......sem er óneitanlega erfitt, því það dimmir barasta ekki neitt! Svoneridda, mar er búinn að búa hérna alla sína ævi, og á hverju einasta sumri, er maður alltaf jafn hissa á því hvað er bjart á sumrin!!!!! Held að maður sé ekki í lagi....

Allt gengur svosem sinn vanagang hér á bæ, við mæðgur erum bara að dúllast saman og njóta lífsins (auðvitað Bjöggi líka, en hann er alltaf að vinna svo mikið maðurinn), hún Elísabet Inga er nottla æðisleg, (enda ekki við öðru að búast, góð gen sko) og hún er barasta alveg að detta í það að verða 6 mánaða!!!!! Ekkert smáááá fljótt að líða.....Ég er bara að fara að panta sal fyrir ferminguna hennar, svei mér þá.....

Smá forvitni......

Þið sem eruð reglulegir kommentarar, endilega skrifið inn 2-3 hluti sem þið eruð háð.... Bara smá forvitni í mér sko, engin vísindaleg könnun eða neitt....Pjúra forvitni...... og plííííííís ekki reyna að vera skáldleg og skrifa "ég er háð/ur ástinni" eða eitthvað álíka klént...bara e-h 2-3 hluti sem þið eruð háð og útskýra hversvegna.

ok...

ég skal byrja...

beilsaí bili...


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 22:19:18 / linda

hard rock halelujah

jahá....

ég sem hélt að sumarið væri komið.....Ég held að veðurguðirnir séu að mótmæla....Gæti verið að þeir séu að mótmæla ósvífnum Grikkjum, og að hegna þeim fyrir argasta dónaskap á Laugardaginn? Hver veit...En væri þá ekki frekar vont veður í Grikklandi? Við skulum ekki tala um að kannski séu þeir að mótmæla Miss S.N, því að hún er snilli....Fannst það fyndnasta í heimi þegar hún sagði "ég vil fá hann pabba minn" og "þessir fávitar eru búnir að skemma í mér heilann......og hjartað...." Við Bjöggi og Gulla og Siggi ældum úr hlátri......Hún er algjör stjarna sko..Var alveg sátt við hennar frammistöðu, en fannst ömurlegt að hlusta á þessa fjandans dóna sem púuðu á hana og púuðu svo á annað hvert lag í aðalkeppninni.....Aumingjar......Lúserar og ábyggilega allir með lekanda.......

En svona að öllu júró slepptu, þá er alveg heill hellingur búinn að vera í gangi....Thelma komin heim, og það er ekkert smááá gott að geta knúsað hana aðeins áður en hún fer til Eyja....Hún er algjör engill, og ég var sko alls ekki búin að gleyma hvað það er gott að knúsa hana...;);)

Beggan mín er alsekki alein um þessar mundir, stúlkan sú arna ber barn undir belti, og vilja fróðir menn meina að þar séu tvö á ferð, en sónar segir nei nei, við sjáum það í nóvember bara..8|

Svo er nottla Gullan mín að koma með einn grísling núna í Júní..Er sett 17, en ég er margoft búin að benda henni á að 15 júní sé mjög svo heppilegur, því þá á ég sko ammli..8)

Svo erum við Lautarsystur (og börnin nottla) komnar í very new húsnæði, kominn friggin tími til sko....Þetta er massa leikskóli, allt voða fínt og nýtt og flott......:D

Svo held ég, er samt ekki alveg 100 % viss, en ég hef það einhvernvegin á tilfinningunni að það gætu verið kosningar í nánd....er samt ekki viss afhverju mér finnst það...Can´t put my finger on it.......:$

Jú og eitt enn: við erum semsagt búin að fresta flutningum aðeins....Getum barasta ekki selt húsið okkar...Ekkert að ske sko...Gæti best trúað því að Begga standi hér á horninu með haglabyssuna hans pabba síns og segi við þá sem girnast húsið mitt " i´m gonna bust a cap in your ass if you go there nigga´":haha:

Jæja, komin með blöðrur á puttana.....og svita á efrivör.....Verð að hætta......8|

Niggah please......

Sjéykkur.....


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 09:54:59 / linda

silvía næt sjæning in ðe læt.....

er frekar andlaus.....

best að hafa þetta svona, því ég er of andlaus til að setja þetta í bundið mál.

  • Thelma kemur á morgun. Sjibbííííí
  • Silvía Night kemur, sér og............Sigrar á morgun? Veitiggi, kannski....
  • Elísabet fékk tönnslur nr 3 og 4 um daginn...... Snúllan......
  • Hlakka til að horfa á Eurovision, bæði á morgun og á Lau, sama hvort Silvía kemst áfram.
  • Vona það nú samt.....
  • Nenni ekki að hafa svona kalt núna.......
  • Ætla að fara að taka til, þósvo ég nenni því ekkkkkkkki...

blæ, blogga á mongun, þá hef ég nógan anda, eftir júró sko.....


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 14:07:25 / linda

sjibbí......

6 leiðir til að lifa með HM.

  • Feldu fjarstýringuna og sjáðu manninn þinn engjast á meðan hann leitar..
  • Svissaðu nokkrum snúrum á dvd, fjölvarpinu og sjónvarpinu og sjáðu hvað gerist þegar hann reynir að kveikja..
  • keyptu nýtt skópar fyrir hvert mark sem er skorað í keppninni..
  • ræddu við kærastann um útlt búninga og vöðvabyggingu einstaka leikmanna og taktu mynd af hneykslunarsvipnum.
  • Hrópaðu "Rangstæður!!" þegar kærastinn reynir að kúra hjá þér eftir afskiptalausan knattspyrnudag.
  • Mundu að segja honum aldrei að ofangreint hafi verið planað hjá þér..

jahá......ég yrði sennilega sett út á guð og gaddinn ef ég myndi vooooooga mér.....

Bjöggi hefur nebbla áhuga á fótbolta....mjög mikinn áhuga....óeðlilega mikinn áhuga..jaðrar við þráhyggju....Hann horfir á ALLA leiki , sama hver er að spila..svo horfir hann á endursýningu..svo mörk dagsins...svo á mörk vikunnar....svo mörk mánaðarins og svoooo 100 bestu mörk ársins.....Guuuuð, myndi ekki nennissu....Svo er sagt þegar ég horfi á Friends "þú ert ábyggilega búin að sjá þennan þátt alveg TVISVAR!"  jáoghvaðmeðþað???

Hann er líka að fara bráðum í fæðingarorlof......um miðjan júní......hummmmmmmmmmm, hvað er að ske þá......? HM kannski?..............skítalykt af þessu......:haha::haha:

En allavega, ég þrauka.....fæ bara að horfa á Friends 24/7 þega HM er búið.......og einstaka Simpsons þátt inná milli.....

p.s Thelma mín er að koma eftir 6 daga!!!!!! vúhú!

hagið ykkur gemlingarnir ykkar.....


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 21:42:01 / linda

da da da

ég trúi því statt og stöðugt að sumarið sé á næsta leiti....er farin að lengja eftir því....

Stundum þá skil ég ekki sumar bíómyndir....Hver setti þá reglu að góðu gæjarnir þurfa ALLTAF að vinna, vondu kallarnir enda ALLTAF í fangelsi og aðal góði gæjinn og sætasta stelpan verða ALLTAF heví ástfanigin..þó hún hafi verið í ástríku en jafnframt innihaldslausu sambandi við ríkasta mann jarðkringlunnar og góði gæjinn er mökkfátækur en sjúklega sætur......afhverju er þetta svona? Ég væri til í að sjá eina bíómynd þar sem góði gæjinn er mökkljótur, en alveg heví hjartahreinn....eða vondi kallinn er alveg ferlega vondur en svo fallegur að maður trúir því ekki að hann sé vondur....eeeeeeeða, þar sem sæta stelpan endar með vonda kallinum og góði gæjinn verður að láta sér nægja næst sætustu stelpuna.......

úr einu yfir í annað....Thelma mín fer að koma heim.....stoppar reyndar stutt hér en ég ætla líka að nýta hverja mínútu sem ég fæ með henni í að knúsa hana og segja henni hvað ég saknaði hennar......

Svo vill ég nýta tækifærið og þakka öllum þeim sem styrktu Sigga og fjölsk. Styrkatrkvöldið tókst rosa vel og allir þeir sem styrktu á einn eða annan hátt eiga hrós skilið.

nóg komið í bili en munið:

Then you should know
That one day we are gone
So keep your head to the sky
See the path we refuse is the path we should choose
They wont take the world when you die


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 23:19:41 / linda

hver nennir?

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifin/nn af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

Linda-sem-nennti-ekki-að-blogga-það-er-samt-frá-svo-miklu-að-segja-en-ég-blogga-á-morgun......

» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6